Þeir skutluðu upp einni skutlunni á mánudaginn og ykkar maður var auðvitað í stúkusæti. Flórída er eins og Seltjarnarnesið, lítið og lágt, og skotpallurinn blasir við út um gluggann hjá manni. Ansi hreint tignarleg sjón.
Svo voru vélabísarnir eitthvað að bisa við eina aðalvélina. Þurftu að skipta held ég um kerti eða platínur (eða kannski spíss og dísur???) og því komum við höktandi á hinum þremur inn til Nassau. Þegar við nálgumst lóðsinn hringir aðalvélabísinn og segist vera í vandræðum með að kúpla þriðju vélinni inn svo eftir voru 2. Við héldum auðvitað óhræddir áfram en þegar við vorum að nálgast bryggjuna og þurftum að snúa dallinum hringir síminn og aftur var það grísboltinn. Núna hafði þriðja vélin hrokkið úr gír og allt í voða, dallurinn á stjórnlausu stími inni í höfninni og góð ráð dýr. Ykkar maður var nú ekki að kippa sér upp við svona smotterí. Setti bara í bakkgír á þessari einu á meðan smurhundarnir hlupu um og reyndu að bjarga því sem bjarga varð. Þeim tókst á endanum að koma druslunni í gírinn og áfram hélt ykkar einlægur upp að bryggju, en aðeins með tvær í takinu. Vakti stóísk ró mín mikla aðdáun og lof en ég viðurkenndi að ég hefði verið eins og önd.
Pollrólegur á yfirborðinu en djöflast eins og andskotinn undir niðri.
fimmtudagur, nóvember 19, 2009
sunnudagur, nóvember 15, 2009
Áfram Latibær
Það er mikið heilsuátak hérna um borð og fólk keppist við að bræða af sér mörina eins og það lifandi getur. Ég hef að mestu haldið mig frá þessum bjánaskap, sleppi því alveg að lepja kálsúpur sem hafa þann helsta galla og hliðarverkun að auka ákaflega allan aftansöng.
Eins hef ég ekki hætt mér í leikfimisalinn eftir hrakfarirnar í síðasta úthaldi.
En ég lét gabba mig til að prufa mixtúru sem er til þess ætlað að hreinsa mann allan að innan, og er kennt við dítox a la Bónína. Þetta töframeðal framkallar einhverjar þær mestu iðrakveisur sem þekkt hafa um víðan völl. Án þess að vilja fara mjög grafískt í allar lýsingar get ég viðurkennt að ég var, eins og þeir segja, "full of shit". Tvisvar á dag fær maður hressilegan niðurgang. En er allur að braggast. Eins og nýhreinsaður hundur.
Datt í hug að þið hefðuð gaman af því að vita þetta.
Annars er að kólna. Ekki nema 15 gráður á föstudaginn og maður grét eins og kelling yfir nístingnum. Dró fram húfu og vettlinga og setti upp þar sem ég flatmagaði undir pálmatrénu. Næsta víst að maður fer ekki í sólbað nema í djúpi nærunum á næstunni.

þriðjudagur, nóvember 10, 2009
Bræla
Það er búin að vera bræla undanfarið og loksins í dag sem veðrið fór að skána og sást til sólar. Lítið nýtt, einna helst að ég henti einhverjum ræfli í land fyrir að míga utan í vegg og vera svo með derring. Hann var í hóp sem fór í siglingu vegna brúðkaups sem átti að halda þann sama dag. Gallin var að mamma þessa 22 ára gamla kjána var að láta gifta sig. Þess vegna var lítil gleði og reisn yfir athöfninni og mamman sjáfsagt voðalega stolt af syninum.
En hápunktur liðinnar viku var þegar ég fór í land og keypti mér Twinkies. Það var gott.
Annars bara allt það besta.
En hápunktur liðinnar viku var þegar ég fór í land og keypti mér Twinkies. Það var gott.
Annars bara allt það besta.
þriðjudagur, nóvember 03, 2009
sunnudagur, nóvember 01, 2009
Síkorskíþyrla, frá varnarliðinu (með sínu lagi)
Það byrjaði vel hjá mínum, maður varla búinn að koma sér í sjógallann þegar ein farmeiningin ætlaði að geyspa golunni. Og ekki af leiðindum. Það var um fátt annað að ræða en að fá hann sóttann og voru strákarnir hjá landhelgisgæslunni amrísku boðnir og búnir að renna eftir manngarminum.Dingluðu hérna stundarkorn og fiskuðu upp einn og annan og flugu svo á brott með tilheyrandi "flyby" eins og við strákarnir gerum alltaf þegar við þurfum að láta á okkur bera.
Nýji dallurinn smellpassaði eins og við var að búast og þess vegna var það auðvitað óþarfi að bera danskt margarín á undirlagið á Stórabeltisbrúnni.
Annars lítið að frétta. Ég er svangur og á leið í klippingu.
föstudagur, október 30, 2009
Skemmtilegt
Settist við vinnuna og tengdi spilastokkinn min og hann byrjaði á að spila hið skemmtilega lag Hvernig getur staðið á því fyrir mig. Það fannst mér svo skemmtilegt að ég snaraði í Sumarblús í kjölfarið.
Hér er stuð!
Hér er stuð!
fimmtudagur, október 29, 2009
Jóhannes
Sá Jóhannes á dögunum og fannst hún bara ágæt. En komst svo að því að ég á bókina sem myndin var byggð á, og þó ég hefði lesið hana á sínum tíma hafði hún lítið skilið eftir.
Myndin skildi meira eftir og ég er enn að hlæja að brandaranum um Íben.
Talandi um bækur þá ber að fagna því að það er farið að endurútgefa bækur Sjöwall og Wahlöö sem eru alveg súper. Rauk út og keypti mér kiljuna sem hafði verið gefin út, Morðið á ferjunni, bara til þess eins að komast að því að þetta er eina bókin sem ég átti fyrir.
Svona er nú það. Skítaveður úti og ekki um annað að ræða en breyta um átt og finna sér pálmatré.
Bless.

Subscribe to:
Posts (Atom)